Menu
Menu
  • Kaffihúsið Græna Kannan opnar aftur 26.feb

    Kaffihúsið Græna Kannan opnar aftur 26.feb

    Kaffihúsið okkar Græna kannan opnar á ný föstudaginn 26. febrúar.  Íbúar Sólheima eru miklir gestgjafar og þess vegna getum við ekki beðið eftir því að opna aftur hjá okkur og taka á móti ykkur með sömu hlýju og gestrisni og við höfum ætíð gert.  Opið alla daga frá kl.12:00-17:00. Gætum vel að sóttvörnum og munum eftir grímunni Sjáumst á Sólheimum!
  • TR Semur við Sólheima um kolefnisjöfnun í anda loftslagsstefnu

    TR Semur við Sólheima um kolefnisjöfnun í anda loftslagsstefnu

    Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri TR og Kristín Björg Albertsdóttir framkvæmdastjóri Sólheimaseturs hafa skrifað undir samning um kolefnisbindingu á allri losun kolefnis sem fellur til vegna starfsemi Tryggingastofnunar. Samningurinn er til fimm ára og mun Sólheimasetur annast bindinguna með því að gróðursetja tré í Sólheimaskógi sem hlotið hefur vottun frá Vottunarstofunni Túni.
  • Stuðningsfulltrúar óskast til starfa á Sólheimum í Grímsnesi

    Stuðningsfulltrúar óskast til starfa á Sólheimum í Grímsnesi

                      Sólheimar í Grímsnesi óskar eftir að ráða trausta og áhugasama stuðningsfulltrúa til starfa ínýju tveggja íbúða sambýli fyrir geðfatlaðaeinstaklinga á Sólheimum frá og með 1. apríl 2021. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 10-12 tíma vöktum í vinnulotum. Starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi. Hlutverk íbúðakjarnans er að veita íbúum aðstoð til að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf...
  • Umsjónarmaður skógræktarinnar Ölurs óskast

    Umsjónarmaður skógræktarinnar Ölurs óskast

                  Sólheimar ses. óska eftir að ráða umsjónarmann yfir skógræktinni Ölri á Sólheimum í Grímsnesi frá og með 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.  Um er að ræða spennandi framtíðarstarf sem felst í umsjón með skógrækt í landi Sólheima ásamt umsjón með aldingarði, ræktun græðlinga og ýmissa nytjajurta í gróðurhúsum Ölurs. Skógræktin Ölur er með lífræna vottun TÚN.Sólheimar eru...
  • Gleðileg Jól

    Gleðileg Jól

    GLEÐILEG JÓL Íbúar Sólheima óska öllum ættingjum og vinum gleðilegra jóla. Með frið í hjarta og sátt í sinni þökkum við fyrir árið sem er að líða og tökum með rísandi sól og full eftirvæntingar á móti nýju ári. 
Vafrakökurstillingarnar á þessari vefsíðu eru stilltar á að „leyfa allar vafrakökur“ til að veita þér bestu upplifunina. Vinsamlegast smelltu á Samþykkja vafrakökur til að halda áfram að nota síðuna.
You have successfully subscribed!