Menu
Menu
parallax

Tré Fyrir Tré

Með sjálfbærni í huga
Allt-3_2048xWkt.jpg__PID:a81e38bb-106f-4351-9fda-876cc2e56fd2

Verkefnið Tré fyrir tré er ætlað að styðja starfsemi Sólheima og hafa jákvæð áhrif á náttúruna.
Í Vefverslun Sólheima er hægt að kaupa handgerðar tréstyttur framleiddar í trésmiðju Sólheima úr viði frá Sólheimaskógi.
Við gróðursetjum tré fyrir hvert keypt tré, mismunandi mörg eftir því hvaða tré er keypt.
Í boði eru þrjú mismunandi tré:

  • Grænt tré (Grængreni) 10 cm hátt - 5 tré gróðursett
  • Blátt tré (Bláfura) 15 cm hátt - 10 tré gróðursett
  • Gult tré (Gullþinur) 20 cm hátt - 15 tré gróðursett

Skógræktin Ölur á Sólheimum annast ræktun og gróðursetningu trjánna. 
Trén sem eru gróðursett á vegum verkefnisins fá nokkuð margþættan tilgang í skóginum. Þau munu ekki eingöngu fegra umhverfið og gönguleiðir um Sólheima, heldur stuðla þau einnig að frekari uppbyggingu trjásafns Sólheima. Trjá og runnasafnið Örkin er verkefni á vegum Ölurs, þar sem markmiðið er að gróðursetja a.m.k. 2 einstaklinga af hverri tegund á landi Sólheima. Þessir lundir geta síðar meir orðið að frægörðum fyrir ræktun Ölurs og gert stöðina sjálfbæra um ýmsar gerðir fræja.
Það er því margvísleg áhrifin sem hljótast af verkefninu.

Trén eru handgerð í Trésmiðju Sólheima úr viði fengnum í Sólheimaskógi. 

Tré fyrir tré - 2025

Gróðursetning tré fyrir tré 2025 - vinstri eru 40 svartelri - hægri eru 100 hengibjarkir

Kort af gróðursetningar svæðinu 2025

Gróðursetning 2025
Árið 2025 var fyrsta gróðursetning á vegum Tré fyrir tré. Gróðursett var fyrir sölu trjánna frá árinu 2024.

140 tré voru gróðursett á Sólheimum. Samfélagið kom saman á sólríkum sumardegi og gróðursetti 100 Hengibjarkir (Betula pendula) og 40 Svartelri (Alnus glutinosa) nærri einni helstu gönguleið Sólheima, Flóðahringinn. Trén voru öll ræktuð á Sólheimum í skógræktarstöðinni Ölri.

Efniviður 2025
Viðurinn sem notaður var árið 2025 í trén (tréstytturnar) er af tegundinni Elri, sem einnig er nefndur Ölur, líkt og skógræktarstöð Sólheima.
Gamall Elrir á Sólheimum skemmdist illa í miklu óveðri 2024. Hann var sagaður niður, viðurinn þurrkaður og síðan unninn í tré fyrir tré verkefnið.
Hefur tréð nú fengið nýtt hlutverk.

IMG_7344.jpg__PID:6e67cb9b-f7a6-4e5d-8f0c-1b4382ceeffa
becb5695-7451-4258-9440-6c12607b1368.jpg__PID:e96e67cb-9bf7-468e-9d0f-0c1b4382ceef
IMG_7371.jpg__PID:1e7729d2-05e0-4c21-be6e-0751043976bc
8ade8ba1-460d-485d-b287-305758b2e7ee.jpg__PID:871fe96e-67cb-4bf7-a68e-5d0f0c1b4382
Eiríkur plantar.jpg__PID:a7a3e3ba-739f-4d57-83cd-f613882798de
67ea1fa2-3f78-4fe8-86f6-31fcd171abcb.jpg__PID:1fe96e67-cb9b-47a6-8e5d-0f0c1b4382ce

Ljósmyndir frá gróðursetningu Tré fyrir tré trjá árið 2025.

Spurt og svarað um Tré fyri Tré

Hvenær eru trén gróðursett?
Í Janúar hvert ár er heildarfjöldi trjáa er tekin saman fyrir árið sem leið, þeim gerð skil í gróðursetningaáætlun Ölurs fyrir árið og gróðursett síðar um árið. Miðað er við að trén séu öll komin í jörðu í lok september ár hvert.

Hvaða tegundir eru gróðursettar?
Stefnt er að því að gróðursetja fjölbreytt úrval tegunda á Sólheimum. Tegundaauðgi er mikilvægt fyrir heilsu skógarins. Í Ölri eru ræktaðar tugi trjátegunda, sumar sjaldséðar en aðrar algengar. Má nefna Birki, Ilmreyni, Svartelri, Gráelri, Ösp, Greni, Lerki, Álm, Hlyn, Eik og fl.

Er hægt að kolefnisjafna sig með þessum trjám?
Til þess að tré nýtist til kolefnisjöfnunar, þarf vottun og eftirlit til að einingar séu marktækar. Í Tré fyrir tré er kolefnisjöfnun ekki markmiðið, þó að trén bindi vissulega kolefni, ekki er gert ráð fyrir utanumhaldi yfir hve mikið þau binda af kolefni.

Hvernig er náttúrusporið jákvætt?
Almennt séð er reiknað með að 10 tré dugi til að binda 1.000 kíló af koltvísýringi úr loftinu. Þar sem 5 tré eru að lágmarki gróðursett fyrir hvert tré sem ætla má að bindi að lágmarki um 500 kíló af kolefni. Það er margfalt meira en það hráefni sem þarf að taka úr skóginum til þess að smíða tréð. Að auki er allt hráefni vistvænt í vörunni og getur hún því ekki haft neikvæð áhrif á náttúruna.

Úr hverju er hráefnið?
Málningin er í grunninn úr próteini, ekki úr akrýl (plast) né öðrum efnum sem brotna ekki náttúrulega niður. Vaxið er unnið úr plönturíkinu án skaðlegra efna og límið er unnið úr collagen próteini, ekki plastefnum líkt og lím sem eru almennt notuð í dag. Viðurinn er að sjálfsögðu náttúruvara. 

Vafrakökurstillingarnar á þessari vefsíðu eru stilltar á að „leyfa allar vafrakökur“ til að veita þér bestu upplifunina. Vinsamlegast smelltu á Samþykkja vafrakökur til að halda áfram að nota síðuna.
You have successfully subscribed!