
Sumarsýning vinnustofa Sólheima

Myndlistarfólkið, sem sýnir hér saman, hefur unnið í allan vetur að metnaðarfullri listsköpun sem einkennist af einlægni og fagmennsku. Verk þeirra eiga það sameiginlegt að geisla frá sér frásagnargleði og þroskaðri næmni fyrir formum og litum.
Öll listaverkin á sýningunni voru unnin á vinnustofum Sólheima. Vinnustofur Sólheima eru fimm talsins: Kertagerð, Leirgerð, Listasmiðja, Trésmiðja og Vefstofa. Á vinnustofunum gefst myndlistarfólki sem búsett er á Sólheimum tækifæri til að starfa daglega að list sinni. Við gerð og framsetningu listaverkanna hafði myndlistarfólkið aðgang að leiðsögn, aðstoð og ráðgjöf leiðbeinenda vinnustofanna.
Myndlistarfólk sýningarinnar 2026 eru:
Arna María Andrésdóttir
Ármann Eggertsson
Baldvin Jónsson
Berglind Hrafnkelsdóttir
Dísa Sigurðardóttir
Edda Guðmundsdóttir
Edvin Kristinsson
Einar Baldursson
Eiríkur Ingi Þórþarson
Elfa Björk Jónsdóttir
Erla Björk Sigmundsdóttir
Guðjón Gísli Kristinsson
Guðlaug E. Jónatansdóttir
Guðrún Lára Aradóttir
Gunnar Óðinn Einarsson
Gunnlaugur Ingimarsson
Hanný María Haraldsdóttir
Ingibjörg Sif Hákonardóttir
Kamma Viðarsdóttir
Kristján Atli Sævarsson
Kristján Ellert Arason
Kristófer Agnarsson
Leó Aðalsteinn Grönwold
Ólafur Hauksson
Pálína Erlendsdóttir
Pálmi Albertsson
Reynir Pétur Steinunnarson
Rúnar Þór Birgisson
Sigríður Anita Sveinsdóttir
Sigtryggur Einar Sævarsson
Yfirlitsmyndir
Ljósmyndir eftir Leif Þór Ragnarsson af sýningunni










