Menu
Menu

Leikfélag Sólheima hefur sýningar á ÁRAR, ÁLFAR OG TRÖLL

Leikfélag Sólheima hefur sýningar á verkinu Árar,álfar og tröll 

Frumsýningin verður í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 22.apríl og verða 5 talsins. Verkið er skrifað af Hannesi Blandon og Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni en Lárus Sigurðsson gerði tónlistina. Guðmundur leikstýrir einnig verkinu. Guðmundur, sem er einn stofnenda leikhópsins Lottu er leikfélaginu að góðu kunnur en þetta er í fimmta sinn sem hann leikstýrir á Sólheimum. Verkið er ævintýri sem fjallar um baráttukonuna Sesselju sem á sér þann draum að opna barnaheimili þar sem allir geta lifað í sátt og samlyndi en þarf til þess fyrst að takast á við konungsríkið og alls kyns verur, svo sem tröll og álfa. Leikfélag Sólheima var stofnað 1931 og á því 90 ára afmæli í ár. Leikfélagið frumsýnir alla jafna alltaf á sumardaginn fyrsta en engin sýning var árið 2020 vegna heimsfaraldursins, það er því sérstök eftirvænting í ár að sjá leikrit aftur á Sólheimum Miðasala fer eingöngu fram á heimasíðu Sólheima www.solheimar.is þann 16. apríl en nánari upplýsingar og fyrirspurnir í síma 847-5323

Vafrakökurstillingarnar á þessari vefsíðu eru stilltar á að „leyfa allar vafrakökur“ til að veita þér bestu upplifunina. Vinsamlegast smelltu á Samþykkja vafrakökur til að halda áfram að nota síðuna.
You have successfully subscribed!