
Fyrirtækin
Græna Kannan er kaffi- og samveruhús íbúa Sólheima og gesta. Ef þú vilt upplifa Sólheima með bragðlaukunum þá er Græna Kannan þinn heppilegasti kostur. Græna Kannan er staðsett í hjarta Sólheima og notar hráefni úr nærumhverfinu svo sem gróðurhúsinu Sunnu og matjurtagarðinum Tröllagarði.
Í Grænu Könnunni má einnig finna Listmunaverslunina Völu, fallega listmuni, kerti, tún vottaðar jurtavörur sem eru framleiddar úr náttúrulegum hráefnum og jurtum úr jurtagarði Sólheima okkar, auk fullt af spennandi vörum sem íbúar Sólheima búa til. Oft eru uppákomur á kaffihúsinu og má sjá yfirlit yfir komandi atburði í dálknum „Á döfinni“ í Upplýsingatorginu.
Verið velkomin í kaffi á Grænu Könnuna!
Opnunartími:
Opið alla daga 12:30 - 16:30
Mánudaga til Föstudaga frá klukkan 11:00 til 16:00
Laugardaga og Sunnudaga frá klukkan 11:00 til 17:00
Nánari upplýsingar í síma 422-6072 eða solheimar(hjá)solheimar.is
Gistiheimili Sólheima
Gisti- og heilsuheimili Sólheima er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum, samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti ( útisundlaug og heiturpottur er lokað tímanundið vegna viðgerða).
Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna herbergi og 7 eins manns herbergi með sameiginlegum snyrtingum, en að auki er þar íbúð með 3 rúmum, svefnsófa í stofu fyrir 2, baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða er í húsinu, vistleg sjónvarpsstofa og falleg sólstofa.
Í Veghúsum eru 6 tveggja manna herbergi með sér snyrtingu og 2 íbúðir. Góð eldunaraðstaða er í húsinu auk fallegrar og rúmgóðar stofu með stórum sólpalli og fögru útsýni.
Gestir geta sjálfir séð um matseld að hluta eða að öllu leyti, en í boði er morgunverður, hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er. Með hvoru húsi fylgir gasgrill, dvd-spilari, geislaspilari, hárblásari og barnarúm.
Opnunartími:
Opið allt árið
Nánari upplýsingar í síma 422-6080 eða gisting(hjá)solheimar.is
Hægt er að bóka gistingu með því að smella hér.
Vigdísarhús
Starfsemi Vígdísarhúsar er margþætt en með megináherslu á framleiðslu á matvælum. Vigdísarhús sinnir rekstri á bakaríi, matvinnslu og mötuneytis á Sólheimum.
Nærandi er vörumerki afurða frá bakaríi og matvinnslu Sólheima en þar eru framleiddar afurðir úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Í Næranda matvinnslu eru framleiddar krukkuvörur eins og marmelaði, chutney, salsasósa o.fl. ásamt súpum og kryddolíum úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Auk núverandi vörulínu er stöðugri þróunarvinnu haldið áfram og nýjum vörum bætt við. Þess má geta að vörur frá Næranda fást í Frú Laugu. Markmiðið er að bjóða vörurnar í sölu í fleiri verslunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt í versluninni Völu og vera þar með leiðandi í framleiðslu á lífrænum matvælum í landinu.
Mötuneyti Sólheima annast hádegisverð fyrir íbúa Sólheima alla virka daga. Daglega er boðið upp á kjöt eða fiskrétt auk grænmetisréttar og er saltaborð með heimaræktuðu grænmeti yfir uppskerutímann.