Menu
Menu

Daníel Hjálmtýsson heldur tónleika í Sólheimakirkju 22. júlí klukkan 14:00

Daníel Hjálmtýsson heimsækir Sólheimakirkju í annað sinn þann 22.júlí nk. ásamt hljómsveit sinni og leikur frumsamin lög í bland við ábreiður í órafmögnuðum stíl.
Daníel sendi ásamt hljómsveit sinni frá sér plötuna Labyrinthia við lok árs 2022 og kom platan út à vínyl á vegum Reykjavik Record Shop þann 23.mars sl. Platan, sem hlotið hefur mikið lof bæði hér heima og erlendis, er við það að seljast upp en einhver eintök verða til sölu í kirkjunni ásamt öðrum varning en Daníel verður tiltölulega nýkominn heim frá tónleikaferðalagi um Austur-Evrópu.
Lög Daníels hafa þá ratað inn á vinsældarlista á Íslandi, Bandaríkjunum, Ítalíu og fleiri stöðum en Daníel hefur einnig getið sér gott orð fyrir túlkun sína á lögum Leonard Cohen og Nick Cave og selt upp tónleika um allt land því tengdu.
Gera má ráð fyrir huggulegri stemmingu og heiðrun minningar vinar Daníels og læriföður, Mark Lanegan en platan Labyrinthia er einmitt tileinkuð minningu Lanegan, sem lést þann 22.febrúar 2022.
Aðgangur ókeypis
Vafrakökurstillingarnar á þessari vefsíðu eru stilltar á að „leyfa allar vafrakökur“ til að veita þér bestu upplifunina. Vinsamlegast smelltu á Samþykkja vafrakökur til að halda áfram að nota síðuna.
You have successfully subscribed!