Réttargæslumaður fatlaða á Suðurlandi fræðir starfsfólk Sólheima
Sigrún Jensey er með aðsetur í Sandvíkurskóla, Bankavegi á Selfossi. Hægt er að ná i hana í síma, 858-2142 eða með því að senda póst á netfangið sigrun@rett.vel.is.
Hlutverk réttargæslumans er að vera fötluðum einstaklingum innan handa og gæta hagsmuna þeirra í málefnum sem snú að almennum mannréttindum.
Sigrún Jensey kemur aftur, þriðjudaginn 12. mars kl. 13:00 og kynnir reglugerðirnar.
Mánudaginn, 4. mars kom Sigrún Jensey Sigurðardóttir, réttargæslumaður á Suðurlandi á Sólheima.
Hún kynnti fyrir starfsfólki tvær nýjar reglugerðir sem snúa að því að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.
Fyrri reglugerðin tekur á skipun sérfræðiteymis sem tekur við beiðnum og veitir ráðgjöf til úrlausnar. Fulltrúar teymisins skulu búa yfir sérþekkingu á málefnum fatlaðs fólks og þekkingu og reynslu af aðgerðum til að koma í veg fyrir beitingu nauðungar.
REGLUGERÐIR um sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=06ec6f08-23d5-448e-a083-e8aabdac0a4a
Seinni reglugerðin snýr að undanþágunefnd um bann við beitingu nauðungar. Nefndin er skipuð þremur einstaklingum sem skulu búa yfir sérþekkingu á mannréttindamálum, þjónustu við fatlað fólk og framkvæmd laga á því sviði.
REGLUGERÐIR um undanþágunefnd um bann við beitingu nauðungar gagnvart fötluðum einstaklingi
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=e421f35e-e59f-4854-aa89-b6e788d0069e
KORT AF SVÆÐINU
Hér má skoða yfirlitskort af öllum helstu svæðunum á Sólheimum.
PÓSTLISTI
Skráðu þig á póstlistann okkar.VEÐUR
Hitastig: 8°C
Vindátt: S
Vindhraði: 9,3 m/s
Örlítið skýjað
Prenta þessa síðu.