Miðvikudaginn 5. desember kl 13:00 verður haldin Jólagleði í Sesseljuhúsi. Allir íbúar Sólheima eru velkomnir. Jólagleðin er haldin í samstarfi við Kerhólsskóla. Allir nemendur og starfsmenn Kerhólsskóla og foreldrar nemanda eru einnig hvattir til að mæta.
Dagskrá: hefst klukkan 13:00
Mæting í Sesseljuhús
Nemendur kynna grænfána verkefni í máli og myndum
Kveikt verður á jólatré Sesseljuhúss.
Magnús Kjartansson tónlistarkennari í Kerhólsskóla leikur jólalög
Jólasveinninn kemur í heimsókn með eitthvað í pokanum
Kakó og smákökur
Lok
Vonum að þið nemendur, kennarar, aðstandendur og íbúar Sólheima sjáið ykkur fært að mæta á Jólagleðina, þetta er löngu, löngu, löngu orðin hefð hjá okkur og styrkir okkar góða samstarf Kerhólsskóla og Sólheima