Starfsnám
Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um:
Starfsnám á Sólheimum Tilgangur starfsnáms á Sólheimum
Tímasetningar og umsóknarfrestir
Samfélagið á Sólheimum
Yfirlit yfir starfsnámið
Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnám
Umsóknareyðublað fyrir starfsnám á Sólheimum
Meðmæli vegna umsóknar um starfsnám á Sólheimum
Námsframboð og fræðslustarf hefur aukist jöfnum höndum á Sólheimum undanfarin misseri og árið 2010 verður enn bætt í því þá verður boðið upp á Starfsnám á Sólheimum. Starfsnámið býður nemendum upp á að öðlast starfsreynslu og geta unnið að eigin áherslum á sínu sviði um leið og þeir öðlast innsýn í hvernig unnið er að umhverfislegri og samfélagslegri sjálfbærni undir handleiðslu starfsfólks á Sólheimum.
Tilgangur starfsnáms á Sólheimum
Starfsnám á Sólheimum miðar að því að bjóða einstakt tækifæri fyrir nemendur til að taka þátt í menntaverkefni sem sem miðar að aukinni sjálfbærni og sterkara samfélagi í sjálfbæru samfélagi á Suðurlandi. Sólheimar eru heimsþekkt samfélag fyrir fólk með sérþarfir, og mun starfsnámið veita nemendum innsýn í og reynslu af þátttöku í sjálfbæru samfélagi og gefa þeim tækifæri á að einbeita sér að einstaklingsmiðuðum verkefnum og markmiðum í námi sínu.
Tímabil og umsóknarfrestir
Árið 2010 verður boðið upp á starfsnám á eftirfarandi tímabilum, og er stefnt að því að þrír Umhverfis- og sjálfbærnistarfsnemar verði starfandi á hverjum tíma:
Vortímabil 2010: mánudag 1. mars-fimmtudags 20. mars.
Umsóknarfrestur: mánudagur 7. desember, 2009
Umsóknum svarað: miðvikudagur 6. janúar, 2010
Sumartímabil 2010: þriðjudagur 1. júní-sunnudags 14. ágúst.
Umsóknarfrestur: mánudagur 1. mars, 2010
Umsóknum svarað: þriðjdagur 1. apríl, 2010
Hausttímabil 2010: þriðjudagur 17. ágúst-föstudags 29. október.
Umsóknarfrestur: mánudagur 10. maí 2010
Umsóknum svarað: fimmtudaginn 10. júní 2010
Samfélagið á Sólheimum
Saga Sólheima:
Sólheimar voru stofnaðir 5. júlí 1930 af Sesselju Hreindísi Sigmundsdóttur (1902-1974), og byggir starfið í hinu sjálfbæra samfélagi Sólheima enn á lífsstarfi hennar og hugsjónum. Sesselja varð fyrir miklum áhrifum af kenningum Rudolf Steiner, og lagði hún áherslu á ræktun einstaklingsins og umhverfisins. Sesselja var ötull talsmaður þess að fötluð og ófötluð börn ættu samskipti og ólíkt því sem annars staðar gerðist á þeim tíma var þessari hugmyndafræði fylgt á Sólheimum. Hún stofnaði barnaheimili á Sólheimum og lagði áherslu á lífræna ræktun matvæla, en hún var frumkvöðull á því sviði á öllum Norðurlöndunum, heilbrigt mataræði og listræna tjáningu. Margar hugmynda hennar ráku í berhögg við skoðanir yfirvalda því á þessum tíma var talið óheilbrigt fyrir ófötluð og fötluð börn að leika sér saman. Hið mikla magn grænmetis í mataræði því sem Sesselja lagði áherslu á var einnig talið óheilbrigt fyrir börnin. Slíkir hugmyndaárekstrar heyra nú að mestu sögunni til og á Sólheimum er enn lögð áhersla á að skapa heilbrigðar aðstæður fyrir líf og störf bæði fyrir fatlaða og ófatlaða.
Sólheimar eru ekki lengur barnaheimili heldur samfélag þar sem markmiðið er að veita hverjum einstaklingi tækifæri í sjálfbæru samfélagi. Sólheimar eru heimili og vinnustaður 43 fatlaðra einstaklinga en alls búa yfir 100 manns á Sólheimum. Af starfsfólki Sólheima búa 10-15 manns utan byggðahverfisins, en á Sólheimum býr líka fólk sem ekki starfar þar. Sjálfboðaliðar hafa frá upphafi verið mikilvægur hlekkur í starfinu og dvelja þeir ýmist til lengri eða skemmri tíma. Menntaverkefni, sérstaklega erlendra háskólanema og starfsnám draga fólk einnig til Sólheima, en á ársgrundvelli er talið að milli 25 þúsund og 35 þúsund manns heimsæki Sólheima ár hvert og er staðurinn í raun vinsæll viðkomustaður ferðamanna árið um kring.
Á Sólheimum er leitast við að hver einstaklingur fái sem best notið sín. Samfélagið nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir listrænt og umhverfisvænt andrúmsloft og er stolt af blómlegu félagslífi, íþróttastarfi, menningarlífi og menningarviðburðum.
Starfsnámið - Yfirlit
Starfsnám á Sólheimum er opið fólki sem er í námi og öðrum (18 ára og eldri) en þeir sem sýna frumkvæði og einlægan áhuga, og hafa menntun á sviði samfélagsmála, listgreina, umhverfisfræða og/eða áhuga á öðrum rannsóknum sem uppfylla þarfir Sólheima.
Markmið starfsnámsins eru:
· Að kynna nemendum daglegt líf og störf í sjálfbæru samfélagi sem er eitt hið elsta á heimsvísu og einstakt að uppbyggingu og starfsemi.
· Að nemendur öðlist skilning á því hvernig unnið er að sjálfbærni með samfélagi.
· Að nemendur þrói einstaklingsmiðuð lærdómsmarkmið fyrir starfsnámið.
· Aðstoða nemendur við að velja sér starfsvettvang með því að veita starfsreynslu á þeirra kjörsviði.
· Að aðstoða nemendur við að skapa tæki til að þróa starfsferil sinn.
· Mynda tengsl við aðra á þeirra kjörsviði sem geta aðstoðað nemendur við að fá starf við hæfi.
· Að hjálpa nemendum við að öðlast skilning á samfélagi, sjálfbærni og umhverfismálum.
· Að auka þekkingu nemenda á íslenskri menningu, tungumálinu og sögu landsins.
· Að styrkja nemendur sem einstaklinga, sjálfstæði þeirra og persónlulegan vöxt og þroska.
Unnið er að þessum markmiðum með handleiðslu nemendanna og uppbyggingu starfsnámsins. Aðalleiðbeinandi starfsnámsins er forstöðumaður Sesseljuhúss umhverfisseturs, sem er sýningarhús um sjálfbærar byggingar og fræðslusetur um umhverfismál.
Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnám
Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnámið byggir á umhverfisverkefnum og verkefnum tengdum sjálfbærni og sjálfbærri þróun. Mismunandi verkefni eru í boði á hverjum tíma og byggir það á þörfum Sólheima og samsetningu starfsnemahópsins, en hér á eftir fer listi yfir hugsanleg verkefni starfsnema:
· Þróun kennsluverkefna í umhverfismennt fyrir Sesseljuhús
o Þróa og reyna námsefni fyrir skólahópa sem heimsækja Sólheima.
§ Þetta verkefni gæti hentað nema í umhverfisfræðum og myndi veita þeim reynslu í þróun og prófun námsefni.
§ Byggja nýtt námsefni á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin og laga það að þörfum mismunandi hópa sem heimsækja Sesseljuhús.
§ Notið sköpunargáfuna! Hvað stendur hjarta ykkar næst? Ertu góður í fuglaskoðun / plöntuskoðun? Væri hægt að þróa námsefni um upplifun á náttúrunni, gönguferð meðfram ánni þar sem kannaðar væru tegundir eða þróaðir leikir þar sem nemendur eru látnir virkja sköpunargáfuna eftir náttúruskoðun, til dæmis með skapandi skrifum, ljóðaskrifum eða öðrum skapandi verkefnum.
§ Tengja hópa við Sesseljuhús og það sem húsið býður upp á. Horfa til þeirrar vinnu sem þegar hefur verið unnin varðandi námsefni og skoða hvaða tengsl sé hægt að mynda við uppbyggingu orkugarðsins og Sesseljuhús sem sjálfbæra byggingu.
· Umbætur í skólpmálum
o Rannsóknarverkefni byggt á því að skoða stöðu tilbúins votlendis sem tekur við skólpi frá Sólheimum og þróun á leiðum til að bæta virkni svæðisins ef með þarf.
§ Þetta verkefni gæti hentað nemendum í ýmsum vísindagreinum, eða öðrum sem sérhæfa sig í vistfræði votlenda eða vatnafræðum (hydrology). Þetta er hagnýtt verkefni sem byggir á beinni þörf samfélagsins.
· Kolefnisjöfnun og skógrækt á Sólheimasvæðinu. Þróun verkefnis sem miðar að því að Skógræktarstöðin Ölur geti boðið gestum upp á að kaupa plöntur til að planta sjálf eða fá starfsmenn Ölurs til að gera það fyrir þá. Hægt er að byggja þetta á vinnu sem þegar hefur verið unnin meðal annars með hliðsjón af lífefldum (biodynamic) ræktunaraðferðum.
· Þróa sjálfbæran bílaflota á Sólheimum, skoða möguleika á framleiðslu og nýtingu metangass og nýtingu vetnis fyrir bílaflota Sólheima.
· Þróa gagnagrunn um vistvænar byggingar. Setja fram þá þekkingu sem til er um Sesseljuhús í formi „case-study“. Þetta verkefni gæti hentað umhverfisverkfræðinemum og/eða arkitektanemum. Gera rannsókn á hefðbundnum íslenskum byggingaaðferðum og hönnun sjálfbærra bygginga. Gera tillögur að hvernig framtíðarbyggingar á Sólheimum geti verið sjálfbærari. Byggja upp þekkingu og gagnagrunn um sjálfbærar byggingar á Íslandi.
· Endurbygging, verndun og varðveisla Sólheimahúss og sögu Sólheima. Varðveisla og skráning skjala, viðtöl og skráning munnlegra heimilda frá íbúum Sólheima. Þetta væri hugsanlega verkefni fyrir nema í mannfræði, sögu, þjóðfræði. Starfsnemi skoðar hvernig sagan hefur hlutverki að gegna í sjálfbærni.
· Ýmis verkefni í vatnafræðum, verkfræði, orkufræðum gætu verið á sviði nýtingar jarðvarma á Sólheimum og skoða hvaða vandkvæðum slík nýting geti verið bundin. Orkunotkun á Sólheimum, mat á orkunotkun og kynning á niðurstöðum með tillögum að því sem betur má fara í orkunotkun.
· Styrkja samfélagið með því að skipuleggja miðlægan vettvang fyrir samfélagið til að njóta góðra samverustunda (skipuleggja viðburði og annað eftir hefðbundinn vinnutíma).
Starfsnám á Sólheimum - Umsóknareyðublað
Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnám 2010
Vinsamlegast fyllið út þessa umsókn og sendið með tölvupósti á Microsoft Word formati á netfangið sesseljuhus@solheimar.is.
Nafn:
Fæðingardagur:
Kyn:
Þjóðerni: Hjúskaparstaða (valkvætt):
Heimilisfang: Sími:
Heimilisfang (ef annað en dvarlarstaður): Email:
1. Ég sæki hér með um starfsnám á Sólheimum á eftirfarandi tímabili 2010. Ef hakað er við fleiri en eitt tímabil, vinsamlegast setjið tímabilin í forgangsröð:
_____ Vor 2010: mánudagur 1. mars – fimmtudags 20. maí
Umsóknarfrestur: mánudaginn 7. desember 2009
Umsóknum svarað: miðvikudaginn 6. janúar 2010
_____ Sumar 2010: þriðjudaginn 1. júní – föstudagsins 13. ágúst
Umsóknarfrestur: mánudaginn 1. mars 2010
Umsóknum svarað: miðvikudaginn þriðjudaginn 1. apríl 2010
_____ Haust 2010: þriðjudaginn 17. ágúst – föstudagsins 29. október
Umsóknarfrestur: mánudaginn 10. maí 2010
Umsóknum svarað: fimmtudaginn 10. júní 2010
2. Starfsreynsla (byrjið á þeirri sem nýjust er):
3. Hver er menntun þín ((byrjið á þeirri sem nýjust er). Vinsamlegast takið fram námskeið og / eða aðra þjálfun sem þú hefur hlotið á þínu námssviði.
4. Hvert er móðurmál þitt? Hvaða aðra tungumálakunnáttu hefur þú?
Svarið í stuttu máli (8 spurningar):
Vinsamlegast hugleiðið eftirfarandi spurningar og svarið í einni til tveimur málsgreinum.
5. Hver er ástæða þess að þú sækir um starfsnám á Sólheimum. Hvað er það sem dregur þig að Sólheimum?
6. Hverjar telur þú að verði helstu áskorarnir í starfsnáminu á Sólheimum? Hvernig sérðu fyrir þér að þú vinnir úr þeim áskorunum?
7. Hvaða merkingu hefur orðið samfélag fyrir þér?
8. Vinsamlegast segið frá reynslu sem þú býrð að úr alþjóðlegu umhverfi, eða annarri reynslu þar sem þú þurftir að líta fram hjá eigin menningu. Hvað hefur þú lært af slíkri reynslu?
9. Skilgreindu í eigin orðum orðið sjálfbærni og lýstu því hvaða merkingu sjálfbært samfélag hefur fyrir þér.
10. Vinsamlegast veldu þrjá af eftirfarandi valkostum í sjálfboðinni þjónustu á Sólheimum og forgangsraðaðu þeim (Lífræn ræktun í garðyrkjustöð, lífræn skógræktarstöð, vefstofa og textíll, leirvinnustofa, jurtastofa og sápugerð, kertagerð, trévinnustofa, tónlist).
1.
2.
3.
12. Vinsamlega gefðu okkur aðrar upplýsingar um þig, (til dæmis hugsjónir þínar, áhugamál, námsmarkmið, reynslu af hópvinnu, vonir þínar og langanir, aðrar áhugaverðar upplýsingar).
Ritgerð
13. Vinsamlegast lýstu markmiðum þínum í námi og fyrirhuguðu starfsnámi á Sólheimum í stuttu máli (500 orð að hámarki). Taktu fram hvaða verkefni höfða sérstaklega til þín og hvað þú myndir vilja leggja áherslu á og hvernig þetta fer saman við námsmarkmið þín. Hvað er það í menntun þinni og reynslu semmun hjálpa þér að ná námsmarkmiðum þínum.
Umsögn (2-3 umsagnaraðilar)
14. Auk útfyllts umsóknareyðublaðs þarftu að skila inn tveimur – þremur umsagnarbréfum. Eitt til tvö ættu að vera frá vinnu- eða námstengdum umsagnaraðila og hið þriðja frá öðrum umsagnaraðila sem þekkir þig vel en er þó ekki ættingi þinn. Umsagnaraðilinn ætti að senda bréfið beint til umsjónarmanns starfsnáms á Sólheimum á netfangið sesseljuhus@solheimar.is eða á faxi: +354 4804402, fyrir uppgefinn umsóknarfrest.
Starfsnám á Sólheimum: Sjálfbærni og umvherfi
Umsögn
Nafn umsækjanda: _________________________________________________
Nafn umsagnaraðila, titill og tengsl við umsækjanda:
__________________________________________________________________
Dags.: ___________________
Þetta umsagnarbréf er ritað að ósk umsækjanda í þriggja mánaða langt Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnám á Sólheimum. Sjálfbærni- og umhverfisstarfsnámið miðar að því að veita nemendum tækifæri til að læra um sjálfbærni með því að starfa að umhverfis- og samfélagsverkefnum. Sólheimar eru lítið sjálfbært samfélag (eco-village) sem miðar að því að rækta möguleika og hæfileika íbúa, og er byggðahverfið heimsþekkt fyrir áherslur sínar í umvherfismálum, að sjálfbærni og þjónustu við fatlaða einstaklinga. Nánari upplýsingar um Sólheima og Sesseljuhús umvherfissetur sem heldur utan um starfsnám á Sólheimum má fá á heimasíðunum; www.solheimar.is and www.sesseljuhus.is.
Vinsamlegast svarið eftirfarandi spurningum eftir bestu vitund. Svörin verða meðhöndluð sem trúnaðarmál og skulu því send beint til forstöðumanns starfsnáms á Sólheimum.
1. Hvernig þekkiru umsækjandann? Er samband ykkar af faglegum toga? Hversu lengi hefur þú þekkt umsækjandann?
2. Hverjir eru stykleikar umsækjandans, að þínu mati?
3. Hverjir eru veikleikar umsækjandans, að þínu mati?
4. Við leitum að starfsnemum sem eru heiðarlegir, vinna sjálfstætt og sýna duglað. Hvernig býr umsækjandinn að þessum eiginleikum að þínu mati?
5. Sólheimar eru samfélag sem byggt er upp í kring um þarfir fatlaðra einstaklinga. Hvaða eiginleikum býr umsækjandinn yfir sem myndi hjálpa honum að virkja og byggja upp vinsamlegt samband og þátttöku í samfélaginu á Sólheimum?
6. Er umsækjandinn fær um að starfa sjálfstætt? Og starfa sem hluti af hóp / teymi?
7. Vinsamlegast bætið við hverjum þeim upplýsingum sem þú heldur að gæti verið gagnlegur við meðhöndlun umsóknarinnar.
Vinsamlegast sendið eyðublaðið til forstöðumanns starfsnáms á Sólheimum á tölvupósti: sesseljuhus@solheimar.is eða á faxi +354 4804402 fyrir gefinn umsóknarfrest. Bestu þakkir fyrir að hjálpa okkur við að kynnast umsækjandanum betur.
|