Engill sameiningar vonar
 Verkefnið Sameining vonar hefur það takmark að skapa tengingu vonar, ástar og samúðar um allan heim.
Það er hugsjón engla sameiningar vonar að byggja upp keðju sem mótvægi við neikvæða krafta sem særa og ógna mannkyninu. Með því að flytja engla sameiningar á mismunandi staði og færa þá að gjöf er fólk frá öllum heimshornum tengt saman og verður hluti alþjóðlegrar hreyfingar til að skapa von, ást og samúð um allan heim.
Fyrstu sjö englarnir voru settir upp á hádegi þann 17. september 2005 á jafn mörgum stöðum; Vanúatú, Ástralíu, Úral-fjöllum, Malí, Perú, Kanada og Hawaii.
Við trúum
að gefa sé að þiggja,
á að sameina í stað þess að sundra,
að þú skiptir máli
að þitt val sé mikilvægt,
að heimurinn sé á okkar ábyrgð,
að minnsta birta geti lýst upp mesta svartnætti,
að við höfum aflið til breytinga.
Verkið var afhjúpað þann 5 júlí 2009 af Eddu Hjaltested og Pétri Sveinbjarnarsyni.
Gefendur eru þrír af erlendum samstarfsaðilum Sólheima:
- Järna, Svíþjóð.
- ASVL, Noregi.
- Marli, Þýskalandi.
Engillinn á Sólheimum er tólfti engillinn sem settur er upp í jafnmörgum löndum.
Heimasíða verkefnisins er http://www.unitehopeproject.com
|