Forsíða
Saga Sólheima
Laus störf
Starfsnám
Skipulagsskrá Sólheima
Fulltrúaráð
Framkvæmdastjórn
Skipurit
Hugmyndafræði Sólheima
Styrktarsjóður Sólheima
Stuðningur við íbúa og byggðahverfið
Póstlisti
Samstarfsaðilar
Myndir



Styrktarsjóður Sólheima

Styrktarsjóður Sólheima var stofnaður árið 1986 og starfar samkvæmt skipulagsskrá.

Sjóðurinn hefur staðið fyrir þeirri uppbyggingu sem orðið hefur á Sólheimum frá stofnun hans. Sjóðurinn er farvegur fyrir gjafir og stuðning einstaklinga og fyrirtækja við Sólheima.

Tvisvar á ári er efnt til fjáröflunar til styrktar verkefnum sem sjóðurinn beitir sér fyrir. verk sjóðsins er;

Hlutverk Styrktarsjóðs Sólheima:

 - Að veita styrki eða lán til verklegra framkvæmda að Sólheimum.

 - Að veita styrki eða lán til að kaupa á áhöldum og verkfærum.

 - Að veita styrki eða lán til námsdvala á sviði er tengist starfi Sólheima.

 - Að styrkja ferðalög, sumardvalir og annað frístundstarf íbúa Sólheima.

Sjóðnum er heimilt að kaupa eða byggja og reka félagslegar íbúðir, orlofsíbúðir eða annars konar húsnæði. Sjóðnum er heimilt að eiga aðild að atvinnurekstri.  Sjóðurinn annast útleigu og rekstur á íbúðarhúsnæði að Sólheimum.

Íbúðarhúsnæði í útleigu

31 íbúðir

2 sambýli

5 íbúðir fyrir heldriborgara

4 íbúðir í tveimur raðhúsum

12 einbýlishús

Atvinnuhúsnæði í útleigu

Veghús, gistihús

Ólasmiðja, verkstæði og vinnustofur

Ingustofa, verkstæði og vinnustofur

Sesseljuhús, umhverfissetur