Hugmyndafræði
Sólheimar byggja á traustum grunni, grunni sem var lagður fyrir tæpum 80 árum. Í upphafi var markmiðið að leggja þeim börnum lið sem bjuggu við erfiðar aðstæður. Síðan var farið að leggja fötluðum börnum lið.
Sólheimar þroskast, þróast og breytast eins og samfélagið. Markmið Sólheima er að hámarka lífsgæði skjólstæðinga sinna. Það er gert með margvíslegum hætti, s.s.skapandi starfi, öflugu félagslífi, hæfu starfsfólki, þjálfun og örvun, samfélagsþátttöku, kristilegu starfi, öryggi og góðri aðstöðu.
Öll þjónusta á Sólheimum er einstaklingsmiðuð, reglulega endurmetin og það tryggt eins vel og hægt er að einstaklingurinn sjálfur komi að ákvörðunartöku um eigin líf. Þjónustusamningar eru gerðir árlega við hvern einstakling.
Skjólstæðingahópur Sólheima er fjölbreyttur, fatlaðir, langtímaatvinnulausir einstaklingar, fangar og krabbameinssjúkir.
Auk þess búa á Sólheimum ungir sem aldnir, íslendingar sem útlendingar. Fjölbreyttni og tilgangur auk samfélagsþátttöku er það sem skiptir máli.
Fötlun eða fangi er aukaatriði, einstaklingurinn þroski hans og þróun er aðalatriðið.
Byggt er á öfugri blöndun, þar sem samfélagið er byggt upp með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi og hinum "ófatlaða" er blandað inn í samfélagið.
|