Samstarfsaðilar
Sólheimar eiga í öflugu og góðu samstarfi við fjölda aðila bæði innanlands sem utan.
Global Eco village Network (GEN), Sólheimar eru aðilar að GEN og eru virkir í aðlþjóðlegu starfi þeirra. www.gen.ecovillage.org
Center for Ecological Living & learning (CELL), Sesseljuhús hefur í samstarfi við CELL byggt upp nám fyrir bandaríska háskólanema sem er eitt missieri í senn og fer námið fram á Sólheimum. Einnig er hafið þriggja vikna vor námskeið fyrir bandaríska nema. www.cellonline.org
Camphill, Sólheimar og Camphill samtökin eiga í traustu samstarfi þar sem skiptst er á þekkingu og heimsóknum. www.camphill.org.uk
Sólakra í Jarna Svíþjóð, Sólheimar og Sólakra eiga í traustu samstarfi þar sem skiptst e á þekkingu og heimsóknum. www.solakrabyn.se
ASVL Noregi, Sólheimar og ASVL hafa byggt upp traust samstarf á nýliðnum árum. www.asvl.no
Marli Þýskalandi og Sólheimar eiga í traustu samstarfi þar sem skiptst er á þekkingu og heimsóknum. www.marli.de
Hitaveita Suðurnesja, HS er bakhjarl Sesseljuhús og traustur stuðningsaðili Sólheima. www.hs.is
Landsbanki Íslands er bakhjarl Sesseljuhús. www.landsbanki.is
Landsvirkjun er bakhjarl Sesseljuhúss. www.lv.is
Umhverfisráðuneytið er bakhjarl Sesseljuhúss. www.umhverfisraduneyti.is
Vinnumálastofnun, og Sólheimar hafa unnið í sameiningu að endurhæfingu atvinnulausra einstaklinga í á annan áratug. www.vmst.is
Grunnskólinn Ljósaborg, nemendur Ljósaborgarskóla koma í fræðslu og verkefnavinnu á Sólheima í eitt misseri. www.ljosaborg.is
SEEDS sjálfboðaliðasamstök, eru í samstarfi við Sólheima um dvöl erlendra sjálfboðaliða á Sólheimum. www.seedsiceland.is
AUS sjálfboðaliðasamtök, eru í samstarfi við Sólheima um dvöl erlendara sjálfboðaliða á Sólheimum. www.aus.is.
Bergmál líknar- og vinafélag og Sólheimar hafa um árabil átt í árangursríku og traustu samstarfi. Bergmál hefur reist sitt eigið heilsuheimili á Sólheimum. www.bergmalid.is
Fangelsismálastofnun og Sólheimar hafa átt í samstarfi um verkefnið "afplánun fyrirmyndarfanga", þar sem föngum gefst tækifæri á að taka hluta afplánunar sinnar út á Sólheimum og byggja þannig sjálfan sig upp og tengsl við fjölskyldu sína. www.fangelsi.is
Veraldarvinir og Sólheimar eiga í samstarfi um dvöl erlendra sjálfboðaliða á Sólheimum. www.wf.is
Félagsmálaráðuneytið og Sólheimar eiga með sér samstörf um þjónustu við fatlaða. www.felagsmalaraduneyti.is
Fræðslunet Suðurlands og Sólheimar vinna í sameiningu að fræðslu og endurmenntun starfsfólks Sólheima. Auk þess hefur Kertagerð Sólheima og Fræðslunetið boðið upp á námskeið í kertagerð á Sólheimum. www.fraedslunet.is
Suðurlandsskógar og Sólheimar eiga í samstarfi um skógræktarverkefni í landi Sólheima, skógræktarland á Sólheimum er 199 hektarar. www.sudurskogur.is
Fjölmennt á Selfossi og Sólheimar eiga í farsælu samstarfi um fullorðinsfræðslu fyrir íbúa Sólheima. http://www.simnet.is/fjolmenntsudur/
Auglýsingastofan Dynamo hefur með höndum hönnun á öllum umbúðum og kynningarefni á vegum Sólheima. En mikil vinna hefur verið lögð í að ssamræma útlit umbúða, auglýsinga- og kynningarefnis. www.dynamo.is Sólheimar og Árni Friðriksson ASK arkitektum www.ask.is eiga í traustu og góðu samstarfi, en Árni Friðriksson arkitekt hefur teiknað flest öll hús á Sólheimum frá árinu 1985.
|