Forsíða
Símaskrá
Íbúar
Fyrirtæki á Sólheimum
Handverkstæði
Byggðin
Sólheimakirkja
Félags- og menningarstarf
Tónlistarstarf
Íþróttastarf
Leikfélag
Skátafélag Sólheima
Engill sameiningar vonar
Garðar Sólheima
Höggmyndagarður
Bergmál



Garðar Sólheima

Stefnt er að því að byggja upp 7 mismunandi garða á Sólheimum. Fimm þessara garða eru í dag komnir vel á stað. Garðar Sólheima munu í framtíðinni setja sterkan svip á samfélagið, fegra staðinn og auk lífsgæði íbúa Sólheima og þeirra sem heimsækja staðinn.
Þó garðarnir séu ólíkir verða þeir byggðir upp sem ein heild. Allir garðarnir eru opnir allt árið og er fólk eindregið hvatt til að kynna sér garðanna.


 

1. Höggmyndagarður

Garðurinn var formlega opnaður á 70 ára afmæli Sólheima. Í garðinum eru 10 afsteypur listaverka eftir  frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar frá aldamótunum 1900 til 1950 eða frá Einari Jónssyni til Gerðar Helgadóttur. Stefnt er að því að bæta við 2 til 4 verkum fyrir árið 2015.  Stefnt er að því að í framtíðinni verði að finna í garðinum eitt verk eftir alla viðurkennda íslenska höggmyndlistamenn á síðustu öld.


 

2. Ljóðagarður

Í dag eru í garðinum ljóð eftir Matthías Jóhannnesen og Þórarinn Eldjárn. Þessi ljóðaskilti vekja verðskuldaða athygli. Bæði þessi ljóð fjalla um Sólheima. Stefnt er að því að setja upp 2 til 4 ný ljóðaskilti fyrir árið 2015.


 

3.Trjágarður -  trjásafn

Trjásafn Sólheima var formlega opnað 5. júlí 2005 á 75 ára afmæli Sólheima. Í garðinum eru um 50 tegundir  trjáplantna og er garðurinn lífrænt vottaður. Unnið er að stækkun garðsinn og er við það miðað að a.m.k.5 nýjar tegundir bætist í hann ár hvert.
Garðurinn er staðsettur ofan við skógræktarstöðin Öl.

Boðið er upp á skoðunarferðir um garðinn með leiðsögn tvisvar á sumri, þess utan er garðurinn öllum opinn.


 

4. Orkugarður

Sesseljuhús hefur gert metnaðarfulla áætlun um uppbyggingu orkugarðs. Fyrsti hluti orkugarðsinns var opnaður sumarið 2009 með fræðsluefni í miðstöð garðsinns í Sesseljuhúsi. Utandyra  verður svo sett upp upplýsingaskilti við hvern orkugjafa og göngustígar munu tengja saman sýningarsvæði mismunandi orkugjafa í eina heild.

Utandyra verður hægt að skoða og kynna sér eftirfarandi orkugjafa:
 - Sólarorku, nú þegar eru uppsettar sólarsellur á þaki Sesseljuhúss.
 - Vindorku, reist hefur verið vindmylla á Sólheimum.
 - Jarðvarmi, Sólheimar reka eigin hitaveitu.
 - Vatnsorka, sett verður upp smávirkjun í bæjarlæk Sólheima.
 - Líforka, á Sólheimum er líforka bundin í fallegum skógi en þar er einnig að finna jarðgerðarvél sem forvinnur lífrænar leifar til áburðar.


 

5. Garður lífsins.

Í garðinum er ráðgert að gróðursetja eitt tré fyrir hvert barn sem fæðist með lögheimili að Sólheimum. Í deiliskipulagi Sólheima er gert ráð fyrir þessum trjágarði á milli Bergmálshús og Sólheimakirkju.


 

6. Kirkjugarður

Kirkjugarður hefur verið hannaður við kirkjuna. Hafin er landmótun að fyrsta áfanga kirkjugarðs.


 

7. Jurtagarður
Unnið er að hönnun á Jurtagarði Sólheima en í garðinum á að rækta, te, krydd og lækningajurtir.