Brekkukot, gistiheimili
Rekstur Brekkukots er fjórþættur: gisti- og ferðaþjónusta, mötuneyti Sólheima, Græna Kannan kaffihús og Nærandi bakarí og matvinnsla.
Gistiheimili
Boðið er upp á gistingu í uppábúnum rúmum í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum fyrir allt að 37 manns. Aðstaða í báðum húsum er öll hin besta og geta gestir annast sína matseld sjálfir eða keypt veitingar af Brekkukoti.
Á Sólheimum er einnig mjög góð aðstaða til funda og ráðstefnuhalds.
Nánari upplýsingar um veitir Sölvi B.Hilmarsson forstöðumaður Brekkukots. Sími 480 4483. Farsími 898 4483. Netfang brekkukot(hja)solheimar.is
Græna Kannan, kaffi- og samveruhús.
Kaffihúsið selur eingöngu veitingar úr lífrænt ræktuðu hráefni og sem mest heimatilbúnu.
Kaffihúsið er opið alla daga vikunnar frá byrjun júní og fram í byrjun september. Yfir vetrarmánuðina er kirkjukjaffi annan hvern sunnudag eftir guðþjónustu, auk þess sem opið er á fimmtudögum og föstudögum. Á aðventudögum Sólheima er kaffihúsið opið alla daga.
Ýmsar uppákomur og skemmtanir eru haldnar í Grænu Könnunni og þær kynntar í "Á döfinni" á forsíðu heimasíðunnar.
Mötuneyti Sólheima.
Mötuneyti Sólheima annast hádegisverð fyrir íbúa Sólheima alla virka daga, auk máltíða fyrir gesti gistiheimilisins og hópa. Daglega er boðið upp á kjöt eða fiskrétt auk grænmetisréttar auk þess er saltaborð með heimaræktuðu grænmeti yfir uppskerutímann. Eftir fremsta megni er reynt að bjóða upp á fjölbreytta og ferska rétti með lífrænt markmið í huga.
Nærandi.
Nærandi er nýjasta verkefnið á Sólheimum, en búið er að setja á fót bakarí þar sem aðeins verður bakað úr lífrænu hráefni. Á boðstólunum verða brauð, kökur og bökur sem verða snæddar í mötuneyti Sólheima og seldar í Grænu Könnunni og Versluninni Völu.
Nærandi mun einnig taka yfir matvinnslu garðyrkjustöðvarinnar Sunnu sem mun verða staðsett í nýju og betra húsnæði í Vigdísarhúsi. Auk núverandi vörulínu verður þróunarvinnu haldið áfram og nýjum vörum bætt við. Þess má geta að vörur frá Næranda fást nú í Frú Laugu og Versluninni Yggdrasill.
|