Skógræktarstöðin Ölur
Skógræktarstöðin Ölur tók formlega til starfa þann 27 apríl árið 1991. Ölur er eina lífrænt vottaða skógræktarstöðin á Íslandi. Framleiðsla Ölurs er fjölbreytt og eru helstu tegundir í ræktun; - Alaskaösp. - Ilmbjörk. - Reynir, ýmsar tegundir. - Víðir, ýmsar tegundir. - Furur, ýmsar tegundir. - Greni, ýmsar tegundir. - Sumarblóm. - Forrætkað krydd og kál.
Sólheimar eru aðilar að Bændaskógum undir stjórn Suðurlandsskóga og hefur Ölur umsjón með gróðursetningu og umhirðu Skógræktarsvæðisins. Plöntun hófst árið 1991 og er ösk ræktuð á um 80 hekturum lands. Árið 2000 tók gildi nýr samningur við Suðurlandsskóga um ræktun á 199 hektara svæði. Ölur annast plöntun í skógarlandi Sólheima.
|