Íbúar
Rúmlega eitt hundrað manns búa í byggðahverfinu að Sólheimum. Yngsti íbúinn er nokkurra mánaða og sá elsti á áttræðisaldri.
Flestir íbúar starfa á Sólheimum en hluti íbúa vinnur annars staðar. Börn á leikskólaaldri sækja leikskólann Kátuborg á Borg og börn á grunnskólaaldri sækja Ljósuborgarskóla á Borg.
Stærstur hluti íbúðarhúsnæðis á Sólheimum er í eigu Styrktarsjóðs Sólheima en lóðir hafa verið leigðar og íbúar byggt sitt eigið húsnæði.
Lista yfir íbúa Sólheima er að finna undir símaskrá.
|