Forsíða



Fréttir
23.8.2010
Rausnarlegur styrkur enskra skáta til Sólheima
Þann 19. ágúst kom skátahópur frá Englandi í heimsókn til okkar, Girlguiding Surrey West. Þetta voru sextán stúlkur á aldrinum 10-15 ára ásamt fjórum umsjónarmönnum.
29.7.2010
Árni og Ólafur heiðraðir
Við hátíðarsamkomu 2. júlí s.l. í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima voru þeir Árni Friðriksson arkitekt og Ólafur Gústafsson hæstaréttarlögmaður heiðraðir
26.7.2010
Þriggja manna fjölskylda á tvímenningsreiðhjóli

Þessa stundina eru áhugaverðir gestir staddir hjá okkur á Sólheimum. Þetta er franska parið Damien Artero og Delphine Million, sem ferðast um landið þvert og endilangt á tvímenningsreiðhjóli með 10 mánaða dóttur sína, Lirio, í aftanívagni.

15.7.2010
Heimili Friðarins - Ikhaya Loxolo
Heimili friðarins – Ikhaya Loxolo – er systurþorp Sólheima í austanverðri Suður-Afríku. Það voru þýsk hjón, Alexandra og Michael, sem stofnuðu heimilið eftir að hafa verið sjálfboðaliðar á heimili fyrir fatlaða þar í landi. Meðan á dvölinni stóð sáu þau að það var mikil þörf á úrræðum fyrir fatlaða í Suður-Afríku. Í kjölfarið hófst vinnan við að setja á stofn lítið samfélag þar sem fatlaðir og ófatlaðir búa og starfa saman. Þau hófu að safna styrkjum, fengu land til afnota og árið 2005 var fyrsta húsið tilbúið. Þorpið byggist að mestu leyti á sjálfbærum landbúnaði, en þar fer fram bæði húsdýrahald og ræktun nytjajurta og taka allir íbúar þátt í þeirri vinnu.
6.7.2010
80 ára afmælishátíð Sólheima

Dagana 2. - 5 júlí var mikil hátíð haldin hér að Sólheimum í tilefni af því að 80 ár eru síðan Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir hóf störf hér að Sólheimum

14.6.2010
Opnun Menningarveislu Sólheima

Menningarveisla Sólheima var formlega opnuð af mennta- og menningamálaráðherra Katrínu Jakobsdóttur s.l. laugardag. 
Íbúum Sólheima þótti sérstaklega vænt um hlý orð ráðherra og föruneyti hennar sem var eiginmaður og tveir synir. 

14.6.2010
Nýtt ljóð eftir Þorstein frá Hamri afhjúpað
Katrín Jakobsdóttir Menntamálaráðherra afhjúpaði við setningu Menningarveislu Sólheima 12. júní s.l. nýtt ljóð eftir Þorstein frá Hamri sem tileinkað er Sólheimum
13.6.2010
TM styrkir Sólheima og eflir öryggi íbúa

Það má furðu sæta að jafn friðsæl íbúabyggð og Sólheimar þurfi á öryggismyndavélum að halda til þess að tryggja öryggi eigna og íbúa svæðisins.

28.5.2010
Að lesa í landið - fræðslufundaröð 2010
Sesseljuhús mun, líkt og undanfarin ár, standa fyrir röð fræðslufunda um efni sem tengjast umhverfismálum. Fundirnir verða á laugardögum og sunnudögum í sumar og hefjast þeir kl. 13,  þeir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Dagskrá fræðslufundanna má finna hér.
11.5.2010
Sólheimar á Safnasafninu

Í tilefni 80 ára afmælis Sólheima ákvað Níels Hafstein á Safnasafninu við Svalbarðsströnd að blása til veglegrar sýningar á verkum listamanna frá Sólheimum.

23.4.2010
Miðasala er í síma 847-5323
Þar sem sólin á heima!
Leikritið Þar sem sólin á heima eftir Eddu Björgvinsdóttur var frumsýnt í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta fyrir troðfullu húsi!  " Frábær sýning, rosaleg saga, fallegur söngur og leiksigur!  heyrðum við eftir frumsýninguna sem gekk mjög vel.
Eins og alltaf standa fjölmargir íbúar Sólheima að sýningunni og í ár er hópurinn óvenju stór og sýningin vegleg í alla staði í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima í sumar.
16.4.2010
Vigdís Finnbogadóttir 80 ára
Sólheimakórinn söng nokkur lög fyrir Vigdísi í tilefni dagsins
23.3.2010
Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum og Boccia
Íslandsmót ÍF í Boccia fór fram laugardaginn 20. mars og í frjálsum íþróttum  sunnudaginn 21. mars í nýju frjálsíþróttahöllinni í Laugardal, Reykjavík.  Að þessu sinni áttum við einn keppanda í frjálsum íþróttum, hann Ágúst Þór Weaber.
18.3.2010
Nú er gúrkutíð á Sólheimum
Nýuppteknar lífrænar agúrkur frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum fást í Versluninni Völu þessa dagana.   Við erum að tala um hreinasta lostæti!....
4.2.2010
Grímsnes og Grafningshreppur brýtur á fötluðum íbúum sveitarfélagsins

Öryrkjabandalag Íslands og Sólheimar hafa krafist þess að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið láti stöðva greiðslur til Grímsnes- og Grafningshrepps úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þangað til sveitarfélagið sinnir  lögboðinni skyldu sinni, þ.e. að veita fötluðum íbúum á Sólheimum ferðaþjónustu.
28.1.2010
Ljósmyndasýning í Ingustofu

Sunndaginn 24. janúar s.l. opnaði Lárus Sigurðsson ljósmyndasýninguna "Margt býr í fjöllunum" en Lárus er verkstjóri Tré- og hljóðfærasmiðju Sólheima.
25.1.2010
Sólheimar styðja uppbyggingu Heimilis friðarins - Ikhaya Loxolo

Samfélagið á Sólheimum hefur um nokkurra ára skeið stutt við uppbyggingu á Heimili friðarins, systurþorpi í Hindane héraði í Suður-Afríku. Í tilefni 80 ára afmælis Sólheima styður samfélagið nú byggingu tveggja nýrra húsa í þorpinu.

4.1.2010
Þrettándagleði Sólheima
Þá er komið að þrettándagleði Sólheima sem enginn úr sveitinni má missa af, við byrjum snemma á Sólheimum eða kl. 16:00 í íþróttaleikhúsi, blysför að brennu fer af stað klukkan 17:00 og gleðinni lýkur um kl. 18:30 svo að þið í fjölskyldunni ættuð að geta farið á hina brennuna líka.  sSjá dagskrá....
23.12.2009
Jólakveðja frá Sólheimum

Íbúar Sólheima óska öllum velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.  Þakkir fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
8.12.2009
Jólamarkaður Sólheima í Kringlunni 11 - 13 desember.
Allir hjartanlega velkomnir !
Eldri fréttir