Íþróttastarf
Fjölbreytt íþróttastarf er í boði fyrir íbúa Sólheima.
Íþróttafélagið Gnýr starfar á Sólheimum og stendur félagið fyrir reglulegum æfingum og keppnisferðum innanlands og erlendis. Boccia er æft reglulega auk sundæfinga og leikfimi.
Íþróttaleikhús Sólheima er einnig mikið notað til íþróttaiðkanna en þar hefur nýlega verið endurbætt aðstaða fyrir körfubolta. Aðstaða fyrir badminton og blak er þar einnig að komast í ásættanlegt horf.
Á neðri hæð er einnig fullkominn tækjasalur og aðstaða fyrir nuddara og sjúkraþjálfara.
Gönguleiðir í byggðinni og næsta nágreni eru í vaxandi mæli nýttar til útivistar og hreyfingar.
|