Forsíða
Saga Sólheima
Laus störf
Starfsnám
Skipulagsskrá Sólheima
Fulltrúaráð
Framkvæmdastjórn
Skipurit
Hugmyndafræði Sólheima
Styrktarsjóður Sólheima
Póstlisti
Samstarfsaðilar
Myndir



Sólheimar

Sólheimar eru sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Sólheimar eru stofnaðir árið 1930 af Sesselju Hreindís Sigmundsdóttur (1902 - 1974). 

Byggðahverfið Sólheimar leggur áherslu á ræktun manns og náttúru. Rekin er öflug félagsþjónusta á Sólheimum þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs.

Fjölbreytt starfsemi fer fram á Sólheimum svo sem rekstur skógræktar- og garðyrkjustöðva sem báðar stunda lífræna ræktun. Verslun og listhús, kaffihús og gistiheimili. Fjöldi listvinnustofa er á Sólheimum svo sem kertagerð, listasmiðja, keramik, vefstofa, jurtastofa og smíðastofa.

Í byggðahverfinu er kirkja, höggmyndagarður, trjásafn, hljómgarður, listsýningarsalur, umhverfissetrið Sesseljuhúsi auk íþróttaleikhúss. 

Íbúar Sólheima leggja metnað sinn í að taka vel á móti gestum og eru allir velkomnir að Sólheimum. Vakin er sérstök athygli á "Á döfinni" þar sem sérstaklega eru tilgreindir þeir atburðir sem á boðstólnum eru hverju sinni.

* Vertu velkomin(n) á Sólheima *