
Garðyrkjustöðin Sunna
Sólheimar eru vagga lífrænnar ræktunar á Íslandi en Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir var merkur frumkvöðull á því sviði. Almennt er talið að upphaf lífrænnar ræktunar, ekki aðeins á Íslandi, heldur einnig á Norðurlöndunum, hafi verið á Sólheimum.
Sesselja var mikill náttúruunnandi og var meðal þeirra á Íslandi sem fyrst létu sig umhverfismál varða. Það er því löng og sterk hefð fyrir umhverfisvitund á Sólheimum og mikil áhersla á að öll matvæli sem framleidd eru á Sólheimum fullnægi kröfum um lífræna ræktun.
Lífræn ræktun byggir á því að varðveita frjósemi jarðvegsins og ekki er notast við kemísk efni til að auka vaxtarhraða grænmetisins. Lífrænar varnir eru notaðar til að takast á við óværur sem koma upp. Skiptirækt er stunduð til að viðhalda frjósemi jarðvegsins og minnka hættuna á sjúkdómum. Við ræktunina er notast við moltu, fiskimjöl og þörungamjöl.
Helstu framleiðsluvörur Sunnu eru:
- Tómatar
- Kirsuberjatómar
- Agúrkur
- Paprikur
- Salat
- Blandað salat í bökkum
- Kokteltómatar
- Míní gúrkur
Sunna hefur alla tíð ræktað lífrænt grænmeti. Afurðir Sunnu er seldar til mötuneytis Sólheima, í versluninni Völu á Sólheimum, einnig í verslunum Hagkaups og í verslunum Nettós. Útlitsgallað grænmeti er nýtt til niðursuðu í Næranda og þannig nýtist framleiðslan að fullu.
Framleiðsla Sunnu er lífrænt vottuð af vottunarstofunni Túni.
Garðyrkjustöðin Sunna er einn stærsti framleiðandi á lífrænt ræktuðu grænmeti undir gleri á Íslandi.
KORT AF SVÆÐINU
