| |
|
29.7.2010 Árni og Ólafur heiðraðir Við hátíðarsamkomu 2. júlí s.l. í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima voru þeir Árni Friðriksson arkitekt og Ólafur Gústafsson hæstaréttarlögmaður heiðraðir  |
26.7.2010 Þriggja manna fjölskylda á tvímenningsreiðhjóli Þessa stundina eru áhugaverðir gestir staddir hjá okkur á Sólheimum. Þetta er franska parið Damien Artero og Delphine Million, sem ferðast um landið þvert og endilangt á tvímenningsreiðhjóli með 10 mánaða dóttur sína, Lirio, í aftanívagni.  |
15.7.2010 Heimili Friðarins - Ikhaya Loxolo Heimili friðarins – Ikhaya Loxolo – er systurþorp Sólheima í austanverðri Suður-Afríku. Það voru þýsk hjón, Alexandra og Michael, sem stofnuðu heimilið eftir að hafa verið sjálfboðaliðar á heimili fyrir fatlaða þar í landi. Meðan á dvölinni stóð sáu þau að það var mikil þörf á úrræðum fyrir fatlaða í Suður-Afríku. Í kjölfarið hófst vinnan við að setja á stofn lítið samfélag þar sem fatlaðir og ófatlaðir búa og starfa saman. Þau hófu að safna styrkjum, fengu land til afnota og árið 2005 var fyrsta húsið tilbúið. Þorpið byggist að mestu leyti á sjálfbærum landbúnaði, en þar fer fram bæði húsdýrahald og ræktun nytjajurta og taka allir íbúar þátt í þeirri vinnu.
 |
6.7.2010 80 ára afmælishátíð Sólheima Dagana 2. - 5 júlí var mikil hátíð haldin hér að Sólheimum í tilefni af því að 80 ár eru síðan Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir hóf störf hér að Sólheimum  |
14.6.2010 Opnun Menningarveislu Sólheima Menningarveisla Sólheima var formlega opnuð af mennta- og menningamálaráðherra Katrínu Jakobsdóttur s.l. laugardag. Íbúum Sólheima þótti sérstaklega vænt um hlý orð ráðherra og föruneyti hennar sem var eiginmaður og tveir synir.
 |
11.5.2010 Sólheimar á Safnasafninu Í tilefni 80 ára afmælis Sólheima ákvað Níels Hafstein á Safnasafninu við Svalbarðsströnd að blása til veglegrar sýningar á verkum listamanna frá Sólheimum.  |
23.4.2010 Miðasala er í síma 847-5323 Þar sem sólin á heima! Leikritið Þar sem sólin á heima eftir Eddu Björgvinsdóttur var frumsýnt í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta fyrir troðfullu húsi! " Frábær sýning, rosaleg saga, fallegur söngur og leiksigur! heyrðum við eftir frumsýninguna sem gekk mjög vel. Eins og alltaf standa fjölmargir íbúar Sólheima að sýningunni og í ár er hópurinn óvenju stór og sýningin vegleg í alla staði í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima í sumar.  |
23.3.2010 Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum og Boccia Íslandsmót ÍF í Boccia fór fram laugardaginn 20. mars og í frjálsum íþróttum sunnudaginn 21. mars í nýju frjálsíþróttahöllinni í Laugardal, Reykjavík. Að þessu sinni áttum við einn keppanda í frjálsum íþróttum, hann Ágúst Þór Weaber.  |
18.3.2010 Nú er gúrkutíð á Sólheimum Nýuppteknar lífrænar agúrkur frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum fást í Versluninni Völu þessa dagana. Við erum að tala um hreinasta lostæti!....  |
4.2.2010 Grímsnes og Grafningshreppur brýtur á fötluðum íbúum sveitarfélagsins Öryrkjabandalag Íslands og Sólheimar hafa krafist þess að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið láti stöðva greiðslur til Grímsnes- og Grafningshrepps úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þangað til sveitarfélagið sinnir lögboðinni skyldu sinni, þ.e. að veita fötluðum íbúum á Sólheimum ferðaþjónustu.
 |
28.1.2010 Ljósmyndasýning í Ingustofu Sunndaginn 24. janúar s.l. opnaði Lárus Sigurðsson ljósmyndasýninguna "Margt býr í fjöllunum" en Lárus er verkstjóri Tré- og hljóðfærasmiðju Sólheima.
 |
4.1.2010 Þrettándagleði Sólheima Þá er komið að þrettándagleði Sólheima sem enginn úr sveitinni má missa af, við byrjum snemma á Sólheimum eða kl. 16:00 í íþróttaleikhúsi, blysför að brennu fer af stað klukkan 17:00 og gleðinni lýkur um kl. 18:30 svo að þið í fjölskyldunni ættuð að geta farið á hina brennuna líka. sSjá dagskrá....  |
23.12.2009 Jólakveðja frá Sólheimum Íbúar Sólheima óska öllum velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þakkir fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
| Eldri fréttir |
|