|
Sunna - garðyrkjustöð
Sólheimar hafa verið kallaðir vagga lífrænnar ræktunar á Íslandi en Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir stofnandi Sólheima lagði stund á nám um lífræna ræktun í Þýskalandi og var merkur frumkvöðull á því sviði. Almennt er talið að upphaf lífrænnar ræktunar, ekki aðeins á Íslandi heldur líka á Norðurlöndum, hafi verið á Sólheimum. Sesselja var einnig mikill náttúruunnandi og á meðal þeirra fyrstu á Íslandi sem létu sig umhverfismál varða. Það er því sterk hefð fyrir umhverfisvitund á Sólheimum.
Opnunartímar Sunnu eru: Virkir dagar: 00:00 - 00:00 Helgar: 00:00 - 00:00
|