|
Verslunin Vala Þegar komið er á Sólheima er ómissandi að sækja Verslunina Völu, Listhús heim. Verslunin Vala er staðsett miðsvæðis á aðaltorgi Sólheima gegnt kaffihúsinu Grænu könnunni. Verslunin Vala er annarsvegar matvöruverslun, sem hefur á boðstólum almenna nauðsynjavöru en þó með áherslu á lífrænar vörutegundir og hinsvegar Listhús þar sem má sjá afurðir frá vinnustofum Sólheima.
Opnunartímar Völu Virkir dagar kl. 14.30-18.00
Laugardagar kl. 14.00-17.00
|