Forsíða
  Sólheimar
  Byggðahverfið
  Umfjöllun
  Solheimar - English
  Félagsþjónusta
  Félagsmál
  Menningarstarf
  Sólheimakirkja
 - Búnaður kirkjunnar
 - Kirkjuskólinn
  Umhverfismál
  Ferðaþjónusta
  Fréttir
  Laus störf
  English
  Hreindís


Vígð 3.júlí 2005


Arkitekt Sólheimakirkju er Árni Friðriksson hjá ASK arkitektastofu í Reykjavík

Aðrir hönnuðir eru Jón Guðmundsson verkfræðingur og Þór Stefánsson rafmagnstæknifræðingur

 

Fyrsta skóflustunga að Sólheimakirkju var tekin 30. júní árið 2000,

af frú Magneu Þorkelsdóttur og dr. Sigurbirni Einarssyni biskupi.

Framkvæmdir hófust í ágúst árið 2002.

Kirkjan var vígð af Herra Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands, þann 3. júlí árið 2005, á sjötugasta og fimmta afmælisári Sólheima.

Sólheimakirkja er 238 m2 að stærð, rúmtak hennar eru 1160 m3.

Veggir eru steinsteyptir með torfhleðslu að utan. Þak kirkjunnar er úr timbri klætt með þakpappa og rekavið. Burðarvirki í þaki eru límtré.

Efnisval til byggingarinnar er í samræmi við þá stefnu Sólheima, að nota vistvæn efni.

 

Kirkjan rúmar 168 manns í sæti niðri en á lofti er aðstaða fyrir 26 manns, samtals 194.
Í anddyri er skrúðhús, fatahengi, salerni, ræsti- og tengiherbergi.

 

Umsjón með smíði kirkjunnar höfðu þeir Agnar Guðlaugsson þáverandi framkvæmdastjóri Sólheima og Þorvaldur Kjartansson húsasmíðameistari.

 

Kirkjan er í Mosfellsprestakalli. Sóknarprestur er Sr. Rúnar Þór Egilsson.

 

Í nóvember 2004 var sr. Helga Helena Sturlaugsdóttir kölluð sem prestur til starfa að Sólheimum og þjónaði hún fram í september árið 2005.
Í október 2005 var sr. Birgir Thomsen kallaður til starfa sem prestur Sólheima og hefur þjónað síðan.

 

Kirkjan er fjármögnuð af Styrktarsjóði Sólheima með peninga og efnisgjöfum einstaklinga og fyrirtækja. Kirkjan var skuldlaus á vígsludegi.

Eigandi og ábyrgðaraðili að rekstri kirkjunnar eru Sólheimar ses

 

 

September 2007

Sr. Birgir Thomsen

 

           

 
Sólheimar Sjálfbært samfélag , Sólheimum, 801 Selfoss Sími: 480 4400 Netfang: solheimar@solheimar.is