Forsíða
  Sólheimar
  Byggðahverfið
  Umfjöllun
  Solheimar - English
  Félagsþjónusta
  Félagsmál
  Menningarstarf
  Sólheimakirkja
  Umhverfismál
  Ferðaþjónusta
  Fréttir
  Laus störf
  English
  Hreindís


Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum, samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti. Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna og 7 eins manns herbergi ásamt íbúð með 2 rúmum, svefnsófa í stofu fyrir 2, baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða er í húsinu, auk vistlegrar sjónvarpsstofu og sólstofu, en snyrtingar eru sameiginlegar.

Í Veghúsum eru 6 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu og 2 íbúðir. Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa með stórum sólpalli og fögru útsýni. Gestir geta sjálfir séð um matseld að hluta eða öllu leyti en í boði er morgunverður, hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er. Brekkukot býður upp á glæsilega aðstöðu til funda, námskeiða og ráðstefnuhalds í Sesseljuhúsi og mismunandi byggingum á Sólheimum. Einnig er mjög góð aðstaða til margskonar veisluhalda svo sem stórafmæla, brúðkaupa og ýmiskonar samkvæma. Á boðstólum eru metnaðarfullar móttökudagskrár fyrir hópa sem má fá frekari upplýsingar um í kaflanum Móttaka hópa. Sólheimar ráða vel við og hafa reynslu af móttöku stórra hópa sem smárra.

Sesseljuhús
Þann 5. júlí 2002 voru eitt hundrað ár liðin frá fæðingu Sesselju Hreindísar Sigmundardóttur, stofnanda Sólheima. Að því tilefni var Sesseljuhús formlega tekið í notkun en Sesseljuhús er vistmenningarmiðstöð. Þar er glæsileg aðstaða fyrir allt að 100 manns til fræðslu og fundarhalda.

Kaffihúsið Græna kannan
Græna kannan er nýtt kaffihús þar sem allar veitingar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðu hráefni. Kaffihúsið Græna Kannan opnaði í maí 2001 og er staðsett í miðju byggðahverfisins við aðaltorg Sólheima. Sjá nánar Kaffihúsið Græna kannan.

Mötuneyti Sólheima
Mötuneyti Sólheima sér um hádegisverð fyrir íbúa Sólheima alla virka daga auk máltíða fyrir gesti gistiheimilisins. Allur bakstur fyrir Grænu könnuna fer fram í mötuneytinu. Mötuneyti Sólheima veitir að jafnaði 4 einstaklingum með fötlun atvinnu- og starfsþjálfun á á.

Græn ferðaþjónusta
Brekkukot hefur markað sér stefnu í anda Grænnar ferðaþjónustu og fékk t.a.m. Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 2005. Það var einnig fyrsta gistihúsið á Íslandi sem fékk opinbera viðurkenningu þar um. Sólheimar hafa í áratugi verið í fararbroddi í lífrænni ræktun og umhverfismálum og eru síðan 1997 meðlimur í samtökunum Global Eco-village Network, en það eru samtök vistvænna samfélaga á jörðinni. Eftirfarandi er lagt til grundvallar í rekstri Brekkukots:

. að stuðla að umhverfisvernd samhliða aukinni ánægju af útivist
. að kynna gildi þess að neyta lífrænt ræktaðrar fæðu
. að vinna að kynningu á Sólheimum og þeirri hugmyndafræði sem byggt er á
. að stuðla að efnahags- og atvinnuuppbyggingu á Sólheimum
. að taka mið af kostnaði en hafa gæði ávallt í fyrirrúmi.

Gisti-og heilsuheimilið Brekkukot er sjálfstætt fyrirtæki, stofnað 1997. Brekkukot býður gistingu fyrir allt að 33 manns í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum. Brekkukot sér auk þess um rekstur og umsjón mötuneytis Sólheima, kaffihússins Grænu könnunnar, veitingarekstur, og funda, námskeiða og ráðstefnuþjónustu í Sesseljuhúsi.

Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir tók við starfi forstöðumanns Brekkukots 1. apríl 2005.

Bókunarsímar Brekkukots eru: 898 4483 og 480 4483.
Netfang brekkukot@solheimar.is

 

           

 
Sólheimar Sjálfbært samfélag , Sólheimum, 801 Selfoss Sími: 480 4400 Netfang: solheimar@solheimar.is