
Sólheimar voru stofnaðir sem barnaheimili þann 5 júlí 1930 í tjöldum - í dag eru Sólheimar eitt sérstæðasta byggðahverfi Íslands með rúmlega 100 íbúa.
Sólheimar hafa byggst hratt upp og sérstaklega hin síðari ár. Styrktarsjóður Sólheima var stofnaður árið 1986 og hefur hann komið að og séð um fjármögnun á flestu því húsnæði sem byggt hefur verið síðan þá.
Sjóðurinn hefur meðal annars staðið reglulega fyrir fjársöfnunum til að standa straum af kostnaði við uppbyggingu byggðahverfisins.
Sólheimar reka eigin hitaveitu, eigið dreifikerfi á köldu vatni, rafmagni, sjónvarpi og eigið fráveitukerfi. Sólheimar annast einnig sorphirðu, dreifingu á pósti, snjómokstur og veglagningu.
Þó Sólheimar og Styrktarsjóður Sólheima eigi flestar eignir í byggðahverfinu hefur sú breyting orðið hin síðari ár að einstaklingar hafa sótt um lóðir á Sólheimum og byggt sín eigin hús. Í dag eru tvö hús í einkaeigu á Sólheimum og eitt hús til víðbótar í einkaeigu verður reist næsta sumar.
Í apríl árið 1997 útnefndu samtökin Global Eco-village Network Sólheima fyrsta sjálfbæra byggðahverfið á Íslandi og í handbók Evrópudeildar samtakanna er Sólheima getið sem elsta sjálfbæra byggðahverfis í Evrópu.
Rúmlega fimmtíu heimili eru að Sólheimum og bera flest íbúahúsin nöfn sem sótt eru í ritverk Halldórs Laxness, en handverkshúsin nöfn velgjörðarmanna Sólheima. Yfir áttatíu störf eru í byggðahverfinu.
Sólheimahús
Starf Sólheima hófst 5. júlí 1930, á afmælisdegi stofnandans Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur. Reksturinn var í tjöldum og bárujárnsskúr sem í var matreitt. Um svipað leyti hófst bygging Sólheimahúss, en 4. nóvember var húsið fokhelt og starfsemin flutt í kjallarann. Sesselja bjó alla tíð í einu herbergi í kvisti. Árið 1967 var tekin í notkun viðbygging við húsið, eldhús og mötuneyti.
Selhamar
er fyrsta húsið á Íslandi sem er byggt sérstaklega með umönnun þroskahefts fólks í huga. Húsið var reist á árunum 1932-1934. Selhamar er eina steinsteypta íbúðarhúsið að Sólheimum en því hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir.
Íþróttaleikhús
Smíði íþróttaleikhússins lauk 1986. Húsið er alfarið reist af Styrktarsjóði Sólheima fyrir söfnunarfé sem fékkst með Íslandsgöngu Reynis Péturs Ingvasonar. Íþróttaleikhúsið gegnir mikilvægu hlutverki í félags- og menningarlífi íbúa. Í kjallara er aðstaða fyrir heilsurækt, sjukraþjálfun og nudd.
Ólasmiðja
var tekin í notkun 5. júlí 1995, á 65 ára afmæli Sólheima. Húsið var reist af Styrktarsjóði Sólheima fyrir söfnunarfé. Ólasmiðja ber nafn Óla M. Ísakssonar, sem var mikill velgjörðarmaður Sólheima. Óli kom í fysta sinn í heimsókn að Sólheimum 92 ára. Eftir að hafa þegið kaffisopa rétti hann fram ávísun að upphæð ein milljón króna sem hann taldi hóflega greiðslu fyrir veitingar. Eftir þessa fyrstu heimsókn sendi hann Sólheimum jólakveðju ár hvert ásamt ávísun að upphæð ein milljón. Í Ólasmiðju er tré- og hljóðfærasmiðja, Kertagerð Sólheima og viðhaldsdeild.
Ingustofa
var tekin í notkun 5. júlí á 70 ára afmæli Sólheima. Ingustofa er 464 fermetra timburhús með grasþaki, einangruð með endurunnum pappír. Eins og allar stærri byggingar að Sólheimum er húsið byggt af styrktarsjóði Sólheima fyrir söfnunarfé að mestu frá fyrirtækjum á Íslandi. Í Ingustofu er listsýningarsalur og fjórar vinnustofur og verkstæði: listasmiðja, vefstofa, jurtastofa og leirvinnustofa. Ingustofa ber nafn Ingu B. Jóhannsdóttur, sem var mikill velgjörðarmaður Sólheima.
Græna kannan
er samveruhús íbúa Sólheima sem tekið var í notkun á 70 ára afmæli Sólheima. Gömlu gróðurhúsi var breytt í kaffistofu og samveruhús sem opið er fyrir íbúa Sólheima og gesti allt árið.
Sesseljuhús
er umhverfissetur þar sem m.a. fara fram námskeið fyrir almenning, fyrirtæki og stofnanir um umhverfismál. Fræðslustarfið er samtengt skógræktarstöðinni, garðyrkjustöðinni, gistiheimilinu, endurvinnslu og annarri atvinnustarfsemi að Sólheimum. Sesseljuhús er einnig miðstöð fyrir íbúa Sólheima auk þess að vera leigt út til funda- og ráðstefnuhalds.
Sólheimakirkja
var formlega vígð af biskupi íslands Herra Karli Sigurbjörnssyni á 75 ára afmæli Sólheima árið 2005.
Guðþjónustur eru í Sólheimakirkju annan hvern sunnudag allt árið, auk þess sem mikið tónlistaríf er í tengslum við kirkjuna.