4.2.2010 15:03
Grímsnes og Grafningshreppur brýtur á fötluðum íbúum sveitarfélagsins
 |
|
|
|
|
Öryrkjabandalag Íslands og Sólheimar hafa krafist þess að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið láti stöðva greiðslur til Grímsnes- og Grafningshrepps úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þangað til sveitarfélagið sinnir lögboðinni skyldu sinni, þ.e. að veita fötluðum íbúum á Sólheimum ferðaþjónustu. Þess er krafist að samgönguráðuneytið veiti sveitarfélaginu áminningu.
Þess er krafist að ráðuneytið skori á sveitarfélagið að bæta úr framkvæmd sinni og reglum um ferðaþjónustu fatlaðra og að þeim verði breytt í samræmi við úrskurði félagsmálaráðuneytis og samgönguráðuneytis.
Þess er einnig krafist að verði sveitarstjórn ekki við áskorun ráðuneytisins innan tilskilins frests verði greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sveitarfélagsins stöðvaðar þar til bætt hefur verið úr reglunum og að fatlaðir íbúar sveitarfélagsins fái lögbundinn akstur.
Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur hefur fengið á sig 8 úrskurði félagsmálaráðuneytis og samgönguráðuneytis sem staðfesta allir að sveitarfélagið brýtur á íbúum sínum.
Lög og úrskurðir fagráðuneyta eru hafðir að engu í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Það er eðlilegt að spyrja sig á tímum þegar stöðugt fleiri verkefni eru færð frá ríki til sveitarfélaga hvort þetta sé það sem koma skal gagnvart íbúm þessa lands.
Eiga sveitarfélög að geta valið hvaða lögum þau fara eftir? Eiga sveitarfélög að geta haft að engu úrskurði fagráðuneyta?
Slóð á kvörtun til Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.
Til baka