Forsíða



Nánar

25.1.2010 14:54

Systurþorp Sólheima í Suður-Afríku

Sólheimar styðja uppbyggingu Heimilis friðarins - Ikhaya Loxolo

Íbúar Heimilis friðarins - Ikhaya Loxolo

Samfélagið á Sólheimum hefur um nokkurra ára skeið stutt við uppbyggingu á Heimili friðarins, systurþorpi í Hindane héraði í Suður-Afríku. Í tilefni 80 ára afmælis Sólheima styður samfélagið nú byggingu tveggja nýrra húsa í þorpinu.

Á heimilinu búa nú 8 fatlaðir einstaklingar á stóru sveitaheimili þar sem fram fer búskapur af fjölbreyttu tagi og ræktun. Heimilið er rekið af þýskum hjónum, þeim Alex og Michael, en þau leitast við að mennta og þjálfa íbúana til sjálfshjálpar með aðstoð sjálfboðaliða og starfsfólks úr nágrenninu.

Fjármögnun starfsins er með fjölbreyttum hætti, bæði með sölu landbúnaðarafurða, grænmetis, ungra kjúklinga, fræja og græðlinga, og með sölu handverks. Með sumum íbúanna er greidd framfærsla frá S-Afríska ríkinu en allur gangur er á að þær greiðslur skili sér alla leið til samfélagsins. Við uppbyggingu starfsins hafa frumkvöðlarnir, þau Alex og Michael, treyst á stuðning utanaðkomandi aðila og hafa Sólheimar hingað til meðal annars stutt við framfærslu 5 íbúanna og keypt geitur til að auka fjölbreytni í búskapnum.

Heimili friðarins fer nú stækkandi en færri komust að en vildu vegna skorts á húsnæði. Sólheimar hafa því ákveðið að styðja við byggingu tveggja nýbygginga á svæðinu sem verða báðar svefnaðstaða fyrir nýja íbúa. Öðru húsinu er ætlað að svara þörfum eldri íbúa fyrir meira næði en rík þörf er á að gefa fleirum kost á því öryggi og þjálfun sem í boði er á Heimili friðarins.

Húsbyggingarnar eru á byrjunarstigi en framkvæmdum við þær hefur mjög seinkað vegna mikilla þurrka sem geysað hafa í Suður-Afríku síðastliðin misseri. Þó er stefnt að því að byggingarnar verði tilbúnar í tæka tíð fyrir 80 ára afmæli Sólheima í júlí.

Gestir Sólheima og velunnarar hafa margir lagt verkefninu lið með þátttöku í sumarhappdrætti Sólheima en þeim sem vilja láta eitthvað af hendi rakna til verkefnisins er bent á að hafa samband við sesseljuhus@solheimar.is.





Til baka